HÁKOT fasteignasala sími: 431-4045 / 899-4045 auglýsir
* EINIGRUND 3 * 4ra herbergja íbúð á 1. hæð til vinstri í fjölbýlishúsi (94,2 m²) ásamt sérgeymslu í kjallara (21,8 m²) samtals 116 m². Forstofa (flísar, stór fataskápur, skóskápur fylgir ekki).
Hol (parket).
Eldhús (flísar, ljós viðarinnrétting, flísar á milli skápa, ofn, helluborð, vifta,tengi fyrir uppþvottavél).
Herbergi (parket). Herbergi (plastparket, skápur).
Þvottahús (flísar, góð innrétting, niðurfall).
Baðherbergi (flísar, baðkar m/sturtu, flísar á veggjum, ljós viðarinnrétting, upphengt wc, nýlega standsett, ekki gluggi).
Svefnherbergi (parket, fataskápur).
Stofa (parket, útgangur á suður málaðar Svalir).
Sérgeymsla í kjallara (skipt í herbergi og geymslu, Herbergi (parket, ofn og gluggi)).
SAMEIGN: Forstofa (flísar). Stigahús (nýleg teppi). Hjólageymsla, ræstigeymsla og salerni (málað gólf).
ANNAÐ: Íbúð hefur verið mikið endurnýjuð að innan, s.s. baðherbergi, eldhús, gólfefni, innihurðar, innréttingar o.fl. Þrif keypt út á kjallara. Nýjar eldvarnahurðar á íbúð (útihurð) og sameign. Hjóla- og ruslageymsla með sérlega sterku gólfefni. Stutt frá Grundaskóla, verslun, leikskóla, sundlaug, íþróttavelli ofl.
2012: Endurnýjaðar neysluvatnslagnir upp í íbúðir, í eldhúsi, baði og þvottahúsi. Varmaskiptir settur.
2013: Hús múrviðgert að utan, gluggar lagfærðir. Forstofur málaðar.
2014: Hús múrviðgert að utan og málað. Þakkantur að austanverðu lagfærður. Teppi hreinsuð.
2015: Forstofur málaðar. Dren endurnýjað að hluta(gafl vestanverðu).
2016: Endurnýjað þakjárn og rennubönd. Gluggar yfirfarðir þar sem þörf var á.
2019: Klárað að drena með blokkinni og steypt stétt með hitalögn
2021: Endurnýjaðar hurðar á geymslum í kjallara og kjallari málaður
2023: Stendur til að skipta um glugga í stigahúsum og göflum.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.